Pönnukökur og aftur pönnukökur!

Á þriðjudaginn var hinna alþjóðlegi pönnukökudagur!  Hefur einhver heyrt um hann??  Mér finnst hann alveg stórsniðugur!  Miklu betri en bolludagur, pönnukökur eru svo góðar....nammi namm:P  En það er samt týbískt að það sé pönnukökudagur daginn sem ég byrja í átaki!  Ég varð auðvitað að hoppa um einn dag með átakið....;)  En í dag voru restar af pönnukökunum í desert í hádeginu og ég fékk mér ekki!! *stolt*

Í dag er letidagur, nenni ekki að gera neitt af því ég svaf svo lengi í morgun.  Er í fríi til kl. 11 á fimmtudögum þannig að við Rasmus og Jesper höfðum "sleepover" í herberginu hans Jespers en hann átti afmæli.  Við horfðum á meistaraverkið "a night at the Roxbury" og borðuðum afmælisköku sem ég bakaði og borðuðum nammi sem Rasmus keypti...smá svindl af því það var afmæli;) 

Ég ætla bara að vera MEGA aktíf um helgina í staðin og taka mér fríkvöld í kvöld:) Ætla meira að segja bara að drekka vatn í partýinu um helgina!!  Það er engin sem trúir mér.....en ég ætla sko að sanna mig;)  Á sunnudaginn byrja 29 nýir krakkar í skólanum og það er heldur betur spennandi!

En kvöldmatur það er kominn kvöldmatur hérna megin...

knús knús og sakn

Hrefna Rós


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Soffía

A night at the Roxbury - jamm klassík.

Var að senda þér t-póst á gmail netfangið þitt því ég var að reyna að finna þig á Skype en allt kom fyrir ekki.  Kíktu alla vega endilega á tölvupóstinn ;)

Yfir og út,
SME

Soffía, 26.2.2009 kl. 21:09

2 identicon

Ummmm pönnsur eru sannarlega betri en rjómabollur! Ég held að þetta sé einhver Rússneskur siður, ekki bara dagur það var pönnukökuvika hjá þeim sá ég í TV. Greinilega enn ein spennandi helgi framundan hjá þér elskan.  Stattu þig í vatninu og sýndu þeim hvað í þér býr! Stolt af þér - alltaf. Eru e-h Íslendingar í nýja hópnum?

Knus, kossar og ást,  mamma 

mamma (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 22:58

3 Smámynd: Soffía

Koma svo stelpa, blogga
Ma'r bíður óþreyjufullur eftir fréttum fra det mørke

Soffía, 9.3.2009 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband