15.8.2008 | 22:28
København er best
Ég elska Kaupmannahöfn svo mikið. Í dag var það chill á Strikinu með mömmu og pabba og ég var svo dugleg að kaupa ekki neitt!!! Eða ok, keypti bara smá smá en keypti eiginlega ekki neitt miðað við það sem ég hefði getað keypt Ég fór líka í heimsókn til Kára og sá fína fína húsið hans og við fengum okkur einhverja RISA beyglu sem var MEGA góð
Ég settist aðeins með mömmu og pabba á Rådhuspladsen með geitungunum og dúfunum og við kíktum á mannlífið....ekkert smá gaman að horfa á fólkið!! Það voru nokkrir gay pride borðar um hvippinn og hvappinn og ég sá homma útundan mér í MEGA sleik Veit ekki hvort það hafi verið Gay pride en ef það er tilfellið þá er það ömurlegt! Ísland á klárlega LANGflottasta Gay pride-ið!!
Ég og mamma að chilla á Ráðhústorginu
Pabbi og kærustuparið í baksýn.....ég rétt missti af sleiknum innilega
Ok, ef þetta er Gay Pride þá er þetta skandall!!! Ísland BEST í heimi
Mamma og pabbi gáfu mér svona fína nýja skó Þeir meiddu mig samt....en það reddast!
Við enduðum að sjálfsögðu chilldaginn í Köben á blóðugri steik á hereford
Hjónin á hereford;)
Það er búið að vera MAJOR chill hjá mér í kvöld, horfði á danska Talent þáttinn og svei mér þá ef það er ekki til klikkaðara lið hérna en í USA!! Svo er ég búin að vera í tölvunni og ma. tala við Stulla sem var einn að lesa á Krít og Kolbrúnu sem færði mér skemmtilegar fréttir og skemmtilegar myndir!!
Hún á von á strák!!! Nú fer ég að skima eftir gæjafötum í HM;)
Hlakka MEGA mikið til að þessi litli náungi fæðist:)
Snilld!!! Kolbrún er búin að skanna fullt af myndum, ma. þessa ódauðlegu mynd af einu af fjölmörgum gistipartýum hjá okkur stelpunum í saumaklúbbnum;) Vorum sko með sýningu fyrir mömmu og pabba hennar Kolbrúnar sem oftar sem spice girls Hún sendi mér líka eina ódauðlega sem ég ætla ekki að birta hér....hehe...hún er tekin af mér og Matta að sigra kossakeppnina í 10 ára afmælinu hjá Kolbrúnu! Gullmoli sko, en hún verður bara í einkasafninu
En jæja, ég ætla að fara að lúlla, eða reyna það allavega, horfa á smá HIMYM. Er í herbergi með mömmu og pabba og það er frekar erfitt að sofna við svona hrotur...en samt kósí að vera með þau hjá mér, á eftir að sakna þess MEGA mikið!!
Anyways, I'm out
HrefnaRós
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 16.8.2008 kl. 00:56 | Facebook
Athugasemdir
glæsilegt blogg! :)
Kári Gunnarsson, 15.8.2008 kl. 22:36
Ohhhh ... eeeeeelska köben!!! Góðar myndir af ykkur og skemmtilegt að lesa elsku frænka :) Flottir skór!!! Knús á línuna frá okkur Palla - Nighty
Elsa Nielsen, 15.8.2008 kl. 23:04
en gaaaaman!!
ég sendi þér sms í gærkvöldi, ertu ekki enn þá með íslenska númerið??:)
knús til Köben:*
Snjólaug (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 12:37
Jú, ég fékk smsið og sendi þér til baka, reyndar af vodafone.is, virkar kannski ekki að senda frá því héðan:S knús til baka:*
Hrefna Rós Matthíasdóttir, 16.8.2008 kl. 16:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.