16.8.2008 | 17:24
Áfram Ísland!!
Sko bara! Íslensku handboltastrákarnir eru bara flottir! Ég er búin að vera að keyra til Álaborgar í allan dag og missti þess vegna af leiknum en ég heyrði síðustu mínútuna af honum. Við vorum að labba inn í Q8 þegar ég heyri eitthvern rosa leiklestur í gangi úr einhverjum bíl og tveir menn standa þar fyrir utan og naga á sér neglurnar! Svo heyrði ég "det står 30/31 for danskerne...." Þá mundi ég allt í einu eftir þessum leik og við hlustuðum á síðustu mínútuna og 24 sekúndurnar þarna fyrir utan bílinn með Dönunum tveimur. Það var mjög fyndin stemming!
Það var mínúta eftir og Íslendingar búnir að jafna.....Danir með boltann og.......SKORA!! Danirnir tveir fagna og mamma mín labbar í burtu....ekki að meika þetta!! 20 sek eftir og Íslendingar biðja um leikhlé.....útlitið svart.....eeen að sjálfsögðu náðu þeir að jafna snillingarnir!! Súper Snorri Steinn með mark úr víti.....solid Dönsku bíleigendurnir sem voru vissir um sigur fyrir 20 sekúndum heldur betur súrir og við þökkum fyrir að fá að hlusta að rifna úr stolti
Nú eru íslensku strákarnir í 2. sæti í riðlinum sínum með fimm stig en Suður Kórea trónir á toppnum með 6 stig. Nú er bara að rússta Egyptum á mánudaginn....KOMA SVO!!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:29 | Facebook
Athugasemdir
Hæ dúllan mín
Nú er ég spennt að heyra frá þér, þú verður að blogga um hvernig allt er þarna í skólanum...
Svo kem ég eftir viku í heimsókn til þín... Ef þú ert búin að fá þér danskt nr. nenniru þá að senda mér það svo ég geti verið í bandi þegar ég kem =D
Hlakka til að hitta þig sæta...
Knús og kram
Jórunn (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 21:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.