29.9.2008 | 19:03
Húðin mín er að detta af!!!!
Díses kræst!! Ég er ekki að meika þetta, nú er ég loksins farin að geta labbað eðlilega En það þýðir samt eitt....ég er að flagna í drasl! Þetta er ÓGEÐSLEGT!!! Húðin bara flagnar af.....hef btw. aldrei flagnað áður þannig þetta er allt saman nýtt fyrir mér. Allur efripartur líkama míns er að fara af....mjög fyndið samt líka hehemmm....
Ég var voða góð við þá sem hjálpuðu mér í veikindum mínum í dag og keypti blóm handa þeim
En tilgangurinn með þessu bloggi var samt að setja inn myndir af ósköpunum en myndavélin var þá batteríslaus!! Þess vegna kemur myndasyrpa með næsta bloggi þannig þið getið farið að hlakka til
Var með MEGA heimþrá í gær en svo reddaðist dagurinn minn þegar ég frétti að Anna María ætlar að koma í heimsókn fyrstu helgina í nóv, eða réttara sagt ég ætla að hitta hana í Köben....OMG ég hlakka svo til!!! En ég sakna samt allra svo mikið heima, það var kisa hérna sem ég sá og þá langaði mig svo að fara að knúsa Snúlla og Snjólf:S Svo eru kennararnir alltaf með börnin sín hérna og þá sakna ég litlu frændsystkina minna, einn kennari sem á stelpu á aldri við Önnu Lindu og hún minnir mig smá á hana og þá sakna ég litlu snúllufrænku svo mikið:/ En ég sé nú alla um jólin, ekki of langt í það, það er svo gaman hérna að þetta er allt í lagi
Svo ætlar Snjólaug og Mamma að senda mér nammi.....úúú....sweet....en mig langar samt svo mikið í bragðaref....og kentökkí og pizza hut....namm namm
Við Jórunn ætlum að hafa hyggekvöld á föstudaginn, kaupa ís og nammi og leigja spólu, svo gott að Jórunn sé hérna:)
Vona að allir hafi það rosa gott heima
kys og kram
Hrefna Rós
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Hlakka til að sjá þig hnoðrinn minn!!!
Jórunn (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 19:14
Við söknum þín líka!!!! KNÚÚÚS
elsa frænx (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 20:38
Oh Hrefna mín þú ert ótrúleg!!!! Ég samt er greinilega svo evil að ég hló pínu að hrakförum þínum...en ekki misskilja mig samt - ég vorkenni þér mjög mikið, veit að það er mjög vont að brenna og hvað þá svona svakalega!
En vona að þú hafir það nú betra núna Ég sakna þín litla rúsína
Halla Tinna (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 19:49
Snúlli sends his love
Soffía (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 23:34
Mig dreymdi Snjólf í nótt, ég var með hann hérna og svo týndist hann!!
En Halla Tinna, allt í lagi að hlæja, það hafa allir gert það hérna í skólanum, þar á meðal ég
Hrefna Rós (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 08:16
Ég sakna þín alltof mikið Hrefna!! hlakka ekkert smá til að hitta þig í köben:)
get ekki beðið eftir að sjá myndir af hamskiptunum þínum;)
Anna María (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.