2.12.2008 | 13:23
20 dagar!!!!
Það eru bara 20 dagar í að ég komi heim....er alveg að springa út spenningi!! Það þýðir líka þetta:
- 20 dagar í að ég geti knúsað flesta þá sem mér þykir mest vænt um
- 21 dagur í þorláksmessukósýheit með Önnu Maríu
- 22 dagar til jóla
- 25 dagar í æfingabúðir í TBR
- 27 dagar í að ég geti knúsað Snjólaugu mína!!
- 29 dagar eftir af árinu!!! Sem þýðir 29 dagar í gamlárspartý!!
- 31 dagur í afmælið mitt
- 32 dagar í mót í TBR
- 34 dagar í viku afslöppun með vinum og fjölskyldu
Þann 14. janúar kem ég svo aftur hingað í Danaveldi og verð fram í júní:)
Annars er góð helgi að baki, kíkti í götuna í Álaborg með nokkrum úr skólanum á föstudaginn, spilaði svo "holdkamp" á laugardaginn og vann báða leikina mína Svo var jólahlaðborð með klúbbnum um kvöldið. Núna er ég að drepast í bakinu enda hef ég ekki farið til kírópraktors í hálft ár eða eitthvað svoleiðis og ég er vön að fara til hans á svona þriggja mánaða fresti.....en ég fékk tíma einum hérna í Brønderslev og er að fara þangað núna.....
hastalavista beibs....
sjáumst von bráðar!!!!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Vá ekki nema 21 dagur!! Ég hlakka svooo til:D
knúsknús
Anna María (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 19:34
OH MY! tíminn er svo fljótur að líða! I loooove it!
Snjólaug (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 23:10
Time flies when you're having fun, ótrúlegt að jólin séu aaaalveg að koma og þú líka
Saknaðarkveðjur frá okkur í Hfj
Soffía (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 12:11
OMG hvað ég hlakka til að knúsa þig dúllan mín
Sakn,
mamma
Mamma (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.