5.12.2008 | 00:16
Julekalender
Ég er ekki alveg að skilja þetta Julekalender hjá Dönunum. Það ætluðu allir að missa sig yfir þessu þann 1. des og voru voða spenntir þannig ég hélt að þá væri verið að frumsýna þetta.....en nei nei, auðvitað er verið að sýna það í 4 eða 5 skipti....ok, það er alveg hægt að brosa útí annað þegar maður horfir á það en þetta er ekker Pú og Pa sko!!
Annars er ég búin að vera að reyna að leita að íslenskri jólatónlist heillengi, langaði bara að hlusta á nokkur vel valin jólalög en það gekk illa. Að lokum náði ég loks að skrá mig inn á icelandicmusic.com sem er útlenska útgáfan að tónlist.is og nú er í þessu að hlusta á Frostrósirnar yndislegu Við erum byrjuð að syngja jólalög í söngtímum og í dag sungum við "Heims um ból"!!! Ég reyndi að loka eyrunum, þeim fannst öllum voða skrítið hvernig við Íslendingarnir brugðumst við! Þetta er svo heilagt lag, má bara hlusta á á aðfangadag!
Annars er ég alveg að springa úr spenningi núna, langar bara heim núna sko!! En samt, ég er að fara á bretti til Noregs á sunnudaginn og það verður pottþétt geggjað
Krakkarnir í skólanum sem búa í DK ætla margir að halda gamlárskvöld saman, það finnst mér skrítið vegna þess að þau koma hvaðanæfa að frá landinu og ætla þar af leiðandi að borða saman og gista saman ss. ekki vera með fjölskyldunni! Greinilega öðruvísi hefðir hvað það varðar hér en heima, persónulega mundi ég aldrei tíma að gefa upp gamlárskvöld með fjölskyldunni, 100% skemmtilegast kvöld ársins enda á ég svo yndislega og skemmtilega fjölskyldu Hér koma rökin fyrir því af hverju gamlárs er svona skemmtilegt:
Flugeldar....og þá eru stjörnuljósin auðvitað skemmtilegust!
Skaupið....ég og Doddi bró að horfa á það áramótin 2005/2006
Maturinn....Elsa frænka að elda gamlársmatinn síðasta gamlárskvöld...namm namm
Skemmtilega skreytt veilsuborð!
Skemmtileg knöll, lúðrar og svoleiðis fínerí!
Fínir kokteilar
Skemmtilegir partýhattar!:)
Ég er með bestu systurunum og yndislegu fjölskyldunum þeirra;)
Gaman að vera úti að sprengja...!!
Svo er MEGA gaman þegar ég loksins hitti Snjólluna mína eftir miðnætt og restina af my homies!
Og þarna var ég líka glöð að hitta Snjóllu!!!:)
Ohhhh...svo er fínt áramótapartý....áramótin eru klárlega skemmtilegust og það á Íslandi!!;)
Jæja, ætla að fara að koma mér í bólið jafnvel....
knús í klessu og sjáumst brátt!
Hrefna Rós
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
ég fæ fiðring í magann við að skoða þessar myndir!
það er sko búið að redda áramótapartíi, Ragnhildur Edda ætlar að halda mega partí:):) og já áramótin á íslandi eru best!;)
góða skemmtun í Noregi smús:*
Snjólaug (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 11:04
Skemmilegt og ljúft blogg, jólin eru yndislegur tími og alveg nauðsynlegt að vera með þeim sem manni þykir vænst um Hlakka til að fá þig heim Rósin mín, vantar þig alveg í jólaundirbúninginn! Við náum samt góðum dag saman á Þorláksmennu, ég verð í fríi og þá verður "mæðradagur" við tvær að "chilla"! Góða ferð til Norge og farðu varlega í brekkunum
Knus, sakn og ást,
mamma
Mamma (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 21:59
...............uuuu átti náttúrulega að vera Þorláksmessu en ekk Þ....mennu, brussugangur .........alltaf að lesa áður en maður sendir! Maður getur alltaf slegið á ranga stafi á lyklaborðinu
Mamma (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 00:18
humm.... já ég sakan pú og pa smá, það er eitthvað sem er þess virði að horfa á:) Hlakka annas til að sjá þig skvísa :)
Kolbrún Tara (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 01:26
Sakn - ohhh - skemmtileg áramót síðast :)... Nú vantar Ágústu mína... en Tryggvi mætir á svæðið :) Hlakka til að knúsa þig frænka!!!... góða skemmtun í Norge.
Elsa Nielsen, 8.12.2008 kl. 11:26
svooo stutt í þetta:D 2 vikur upp á dag OMG!! :)
ekki klessa á tré í Noregi, nóg af þeim allavega! ;)
Anna María (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 15:16
Bara vika í að þú komir heim það væri gaman að sjá e-ð um hvernig Noregsferðin var
Soffía, 16.12.2008 kl. 15:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.