Dejlige Danmark:)

Jæja, nú er ég komin til Köben eftir smooth ferðalag.  Allt annað en síðasta ferðalag sem ég fór í......mér fannst ég vera ENGA stund í flugvélinni í samanburði við 7 tíma flugið frá Tyrklandi!! Það er líka svo sweet að vera með mömmu og pabba með, þarf ekki að hugsa um neitt sjálf:P  En það er nú örugglega ekki góð æfing fyrir það sem koma skal!

Ég er með efasemdir um farangurinn minn.  Ég reyndi að minnka hann þrisvar, grínlaust, pakkaði þvisvar ofaní og þrisvar uppúr töskunni!  Samt var ég með yfirvigtShocking og það var ekkert smá!!! Mamma og pabbi eru eins og áður sagði með mér og þau tóku með sér eins lítið og þau gátu til þess að ég gæti tekið með mér meira, en nei, það dugði greinilega ekki til.....20.000 kjell í þurftum við *hóst* pabbi *hóst* að borga í yfirvigt!!  OMG ég hefði alveg eins getað keypt mér ný föt fyrir þann pening;)

En á morgun er það fields og svo strikiðSmile

Það var svo leiðinlegt að kveðja alla, ég kvaddi Snjólaugu í morgun fyrir utan vinnuna hennar og það var sko fullt af fólki þar í kring sem hefur haldið að við værum eitthvað skrítnar, að vera að knúsast svona í klessu!!  Ég sakna þín snúllan mín og allra heima á Íslandi, hafiði það MEGA gott og við sjáumst um jólin!

kv.

Hrefna Rós


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að allt gekk vel:D

knús í klessu til Danmerkur:*

Snjólaug (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 09:28

2 Smámynd: katrín atladóttir

dúllur

hafðu það ótrúla gott úti

hlakka til að lesa um ævintýrin hérna:)

katrín atladóttir, 15.8.2008 kl. 14:01

3 identicon

Knúúúús... hver á að passa núna fyrir okkur??? Engin Ágústa og engin Hrefna Rós? búhúúúú...(tár)

SAKN

Elsa frænx (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband