Smá vandamál í nammibindinu.....

Fór til Jórunnar á miðvikudaginn og hún átti stóra köku en ég fékk mér ekki einu sinni smakk.  Svo fórum við í sjoppu og hún keypti sér nammi en ég keypti mér ekki neitt!!  Mjög stolt...ég ætla að vinna þetta veðmál!  Samt eitt STÓRT vandamál.  Eftir tvær vikur verður "adventure race" sem er þannig að við erum 4 saman í liði og tökum þátt í kapphlaupi þar sem við leysum alls kyns þrautir á leiðinni, t.d. sigla á kanó, finna ýmislegt með því að nota áttavita og binda hnúta.  Á milli þrautastöðva hlaupum við og hjólum, svokallað "bike and run"  þá eru tvö hjól á lið, ss. alltaf tveir sem hlaupa og tveir sem hjóla, skiptumst á.  Kapphlaupið stendur yfir í einn sólarhring þar sem ekkert er sofið...ss. hlaup og þrautir alla nóttina líka!!  Ég er MEGA stressuð!!  Maturinn sem við fáum er það sem kemst fyrir í bakpokanum okkar og þess vegna er súkkulaði frábært nesti.....stórt vandamál.....ég held að ég verði að svindla!!!:S

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

... auðvitað svindlar þú ;) KNÚÚS

elsa frænx (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 21:02

2 identicon

ok Hrefna mín hvernig á það líka að vera hægt að fara í MÁNAÐAR nammibindindi?! Ég bara spyr?!! Ég segi þetta sé engin spurning, þú SVINDLAR!!;)

Anna María (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband