20 dagar!!!!

Það eru bara 20 dagar í að ég komi heim....er alveg að springa út spenningi!!  Það þýðir líka þetta:

  • 20 dagar í að ég geti knúsað flesta þá sem mér þykir mest vænt um
  • 21 dagur í þorláksmessukósýheit með Önnu Maríu
  • 22 dagar til jóla
  • 25 dagar í æfingabúðir í TBR
  • 27 dagar í að ég geti knúsað Snjólaugu mína!!
  • 29 dagar eftir af árinu!!! Sem þýðir 29 dagar í gamlárspartý!!
  • 31 dagur í afmælið mitt
  • 32 dagar í mót í TBR
  • 34 dagar í viku afslöppun með vinum og fjölskyldu

Þann 14. janúar kem ég svo aftur hingað í Danaveldi og verð fram í júní:)

Annars er góð helgi að baki, kíkti í götuna í Álaborg með nokkrum úr skólanum á föstudaginn, spilaði svo "holdkamp" á laugardaginn og vann báða leikina mínaSmile  Svo var jólahlaðborð með klúbbnum um kvöldið.  Núna er ég að drepast í bakinu enda hef ég ekki farið til kírópraktors í hálft ár eða eitthvað svoleiðis og ég er vön að fara til hans á svona þriggja mánaða fresti.....en ég fékk tíma einum hérna í Brønderslev og er að fara þangað núna.....

hastalavista beibs....

sjáumst von bráðar!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá ekki nema  21 dagur!! Ég hlakka svooo til:D

knúsknús

Anna María (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 19:34

2 identicon

OH MY! tíminn er svo fljótur að líða! I loooove it!

Snjólaug (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 23:10

3 identicon

Time flies when you're having fun, ótrúlegt að jólin séu aaaalveg að koma og þú líka 

Saknaðarkveðjur frá okkur í Hfj

Soffía (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 12:11

4 identicon

OMG hvað ég hlakka til að knúsa þig dúllan mín

Sakn,

mamma

Mamma (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband